þriðjudagur, mars 24, 2009

Mig langaði svolítið til að geta skráð mig inn á iTunes, þ.e. að búa til iTunes account. Með því að vera með iTunes account er hægt að virkja genius. Ekki er þó hægt að búa til account með íslensku kreditkorti og því leitaði ég annarra leiða.

Þetta er hægt með því að gera eftirfarandi:

1. Fara í iTunes store
2. Fara í ókeypis forrit (hægra megin niðri)
3. Smella á t.a.m. Google Earth
4. Þá kemur upp skráningargluggi
5. Þar velur maður nýskráningu og án kreditkorts
6. Fyllir svo bara út reitina (ég notaði heimilisfang í þýskalandi)
7. Loks fær maður staðfestingar tölvupóst sem maður fer eftir
8. Allt tilbúið og maður er kominn með iTunes account.

föstudagur, febrúar 27, 2009

Mig langaði ferlega til að sofna í rútunni á leið í bæinn í morgun, en gat það ekki. Þá fer maður að hugsa út í það af hverju maður sofnar ekki og reynir að finna leiðir til þess. Plata sig til þess að sofna. Þá fyrst sofnar maður ekki og ergir sig svo á því og svona gengur þetta þar til komið er í Mjóddina.
Ég opnaði augun fyrst í Reykjavík og sá þá að hér er allt hvítt af snjó, ekki miklum þó. Nú fer ég svo bráðlega niður í mötuneyti og fær mér morgunmat. Annað hvort banana og skyr.is eða rúnnstykki og kókómjólk. Síðari kostinn ætti ég síður að taka en stundum geri ég það bara samt. Mötuneytið hér er ekkert spes, en það lagaðist þó núna á tímabili þegar konan þar fór í frí. Þá kom kokkur í staðinn og hann var með meira úrval af áleggi á morgnana og papriku og agúrku með. Hann kom líka salatbarnum í hádeginu í gott horf svo fólk hætti að kvarta. Það þurfti alls ekki mikið til; bara að fylla á svo ekki væri flest búið klukkan tólf og passa upp á að það sé alllavega pasta og kotasæla með. Nú er þó kokkurinn farinn og ég er ansi hræddur um að þetta fari í gamla farið aftur. Allavega er nú bara hangiket og spægipylsa á morgnana og ekki eins skemmtilega fram sett.

fimmtudagur, febrúar 26, 2009

Var aðeins að skemmta mér við að lesa fyrstu innleggin hérna frá mér. Gaman að því hversu duglegur ég var að blogga meðan við bjuggum úti. Nú er þetta ómetanlegt. Maður man auðvitað fullt af hlutum en maður gleymir líka óendanlega mörgu. Þarf maður ekki að passa upp á hvað maður er að gera dagsdaglega því þó maður viti það núna man maður það ekki eftir nokkur ár.
Það er fallegur, en kaldur morgunn í dag. Ég tók sérstaklega eftir því áðan í rútunni hversu bjart er orðið á morgnana. Á kvöldin verður líka mun seinna dimmt. Daginn lengir og það er gott. Nú eru bara tveir mánuðir fram að vori og þá lifnar allt við og hjartað kætist. Þá get ég farið á hjólinu í vinnuna og notið veðurblíðunnar. Vonandi rignir bara ekki mikið...

Ég sit hér fyrir framan tölvuna í vinnunni. Nýkominn. Ég er búinn að fylla á vatnið mitt og sýp af því af og til. Það er eins og ég sé einn hér, en örfáir eru þó mættir þó ég sjái þá ekki. Ætti ég kannski að taka áttafréttirnar. Best að smella sér á ruv.is. Svona. Við þurfum endilega að fara á skíði bráðum, svona áður en vetri lýkur. Keypti mér ágætis skíðaskó síðasta vetur og notaði þá bara einu sinni. Jæja, ég læt þetta gott heita að sinni.

miðvikudagur, nóvember 19, 2008

Ég dottaði aftur í rútunni í morgun og rankaði við mér akkúrat þegar hún keyrði framhjá stoppistöðinni við Skeifuna. Fékk að hoppa út á rauðu ljósi á gatnamótum Grensás og Miklubrautar svo þetta gerði í sjálfu sér ekkert til. Síðast fór ég út á næstu strætóstoppistöð og labbaði til baka.
Hvað um það. Það er bara þægilegt að fara með rútunni í vinnuna, enda getur maður lagt sig á leiðinni.

sunnudagur, nóvember 16, 2008

Ég er að lakkbæsa stigaganginn núna. Loksins er allur panill og allir listar komnir á þennan blessaða gang svo þetta er síðasta lota hvað veggina varðar.
Auðvitað þarf að lakkbæsa þetta tvisvar til þrisvar. Frábærlega skemmtilegt þetta.

Ástæða þess að ég sit hér við tölvuna og er ekki að lakka er að ég er svo ógeðslega svangur að ég bara get ekki. Blóðsykurinn væntanlega í mínus. Maturinn er í ofninum og enn eru um 20 mínútur í hann... Ohhh.

Ef maður er með blogg, á maður þá ekki sjálfkrafa að andskotast út í allt og alla? Koma með athugasemdir á augnablik líðandi stundar og viðra sínar skoðanir - lofta út um hausinn á sér? Vitsmunalegar pælingar og etv. áður opinberlega óbirtar staðreyndir sem fjölmiðlar birta svo í hliðardálkum.

Nei. Svoleiðis nenni ég ekki. Í fyrsta lagi bý ég ekki yfir vitsmunum og í öðru lagi fylgist ég ekki nógu vel með. Á mörgum hlutum hef ég skoðun, einfaldlega af því að annað er ekki hægt, en á flestu mynda ég mér nær enga skoðun. Ég er líka þeirrar skoðunar að til að mynda sér skoðun þarf maður að þekkja flesta fleti málanna og setja sig almennilega inn í hlutina.

En ég leyfi mér hinsvegar að mynda mér skoðun á Bjarna Harðar ... Nú þarf ég að passa mig að byrja ekki eitthvert innantómt raus sem ekki nokkur maður nennir að lesa. Ég myndi ekki nenna að lesa yfir eigin skrif til að fara yfir innsláttarvillur. Sérstaklega ekki ef héldi ég áfram að skrifa um óspennandi hluti eins og stjórnmál og glöpin sem þar viðgangast.

Já, nei. Ekki ætla ég að skutla þessu bloggi inn í ólgandi hringiðu daglegrar umræðu, enda þyrfti það til þess að vera staðsett á vef Morgunblaðsins býst ég við. Þá þyrfti ég líka að vera duglegur að koma með gáfulegar athugasemdir við fréttirnar og ég er ekki maður til þess.

Ég held ég hendi þá bara inn pælingum um hitt og þetta þó þær séu alveg jafn innihaldslausar og allt annað. T.d. núna. Um hvað er ég eiginlega að skrifa? Ekki neitt. Bara af því að ég er svo ógeeeðsleega svangur og nenni ekki einu sinni að vafra um á netinu skrifa ég þetta hér. Nú er enn korter í mat... :-(

fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Það er langt á milli högga hér á þessari síðu. Ég finn mig einfaldlega ekki lengur knúinn til að skrifa neitt hér, enda sjálfsagt bara sama þvaðrið aftur og aftur.

En hvað um það. Ég sit núna í vinnunni - nýkominn með rútunni frá Selfossi. Ég fór á mótorhjóli í allt sumar í vinnuna, en þar sem vænta má að þessháttar fararkostur láti ólundarlega í mikilli hálku fer ég orðið með rútunni á milli.

Samkvæmt mínum útreikningum er ódýrast að fara á milli á mótorhjóli. Sé miðað við bensínverð eins og það er í dag (segjum 153 kr/l) lítur dæmið svona út.

- Bíll: 34.700 kr/mán
- Mótorhjól: 21.200 kr/mán
- Rúta: 30.000 kr/mán

Svo þarf auðvitað að reikna með alls kyns aukakostnaði við bílinn og mótorhjólið á meðan aðeins er fast verð á rútuna. Tryggingar af bíl og hjóli eru um 45.000 hvort fyrir sig, svo er smur- og dekkjakostnaður etc.
Allavega hefur hjólið klárlega vinninginn á sumrin. Skemmtanagildið er hæst og kostnaður minnstur.

Nú þýðir ekki að vera með frekari pælingar á þessum fimmtudagsmorgni og best að reyna að vinna aðeins.